Opnun tilboða
Hafnarfjarðarvegur (40), Vífilsstaðavegur (að Litlatúni) – Lyngás
Opnun tilboða 15. apríl 2020. Endurbætur Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar í Garðabæ.
Verkið felst í:
Sumarið 2020
- · Gerð hringtorgs á Vífilsstaðaveg við Litlatún
- · Breikkun og endurbætur á Vífilsstaðavegi milli Litlatúns og Hafnarfjarðarvegar
- · Breikkun og endurbótum á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar
- · Gerð göngustíga og allur frágangur yfirborðs
- · Öll nauðsynleg lagnavinna fyrir veitufyrirtækin
Sumarið 2021
- · Breikkun og endurbætur á Hafnarfjarðarvegi milli Vífilsstaðavegar og Lyngás
- · Gerð undirganga undir Hafnarfjarðarveg við Hraunsholtslæk
- · Breikkun og endurbótum á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Lyngás
- · Gerð göngustíga og allur frágangur yfirborðs
- · Öll nauðsynleg lagnavinna fyrir veitufyrirtækin
Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Garðabæjar og veitufyrirtækja.
Helstu magntölur eru:
Vegagerð – Hafnarfjarðarvegur og Vífilsstaðavegur að Litlatúni
- Fyllingarefni og burðarlagsefni úr námum 9.300 m³
- Stungumalbik 36.140 m²
- Eyjur með steinlögðu yfirborði 1 .690 m²
- Malbikaðir göngustígar 2.500 m²
Undirgöng undir Hafnarfjarðarveg og stoðveggur við Litlatún
- Fylling við steypt mannvirki 3.500 m³
- Forsteyptar einingar 32 stk.
- Járnalögn, slakbending 22.900 kg
- Steypa 280 m³
Veitufyrirtæki, jarðvinna fyrir sameiginlega skurði
- Skurðir fyrir veitulagnir 3.270 m
- Losun á klöpp í skurðum 50 m³
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. október 2021.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Grafa og grjót ehf., Hafnarfirði | 1.036.545.580 | 134,6 | 161.325 |
Ístak hf., Mosfellsbæ | 972.108.245 | 126,2 | 96.888 |
Háfell ehf., Reykjavík | 938.515.016 | 121,9 | 63.295 |
PK-Verk ehf. og PK Byggingar ehf., Hafnarfirði | 875.220.118 | 113,7 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 770.000.000 | 100,0 | -105.220 |